 Blog For Free!
Archives
Home
2005 October
2005 July
2005 June
2005 May
2005 April
2004 November
2004 October
2004 September
My Links
Hróaskelda!
Mamma Hjördís í heimsókn
Póllandsferð
Stúdentamyndir
Kveðjuparty i sveitinni
Myndir sem ég hef tekið með símaum
Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn
Catia bloggar
Barbarella the band
Elín Pelín
Velvet Revolver
Sonic Youth
...And you will know us by the trail of death
Angu
Audioslave
Björn Berge
Black Sabbath
Block Party
Death from above 1979
Duran Duran
Enslaved
Fantómas
Foo Fighters
The Futureheads
The Go! Team
Interpol
Junior Senior
kent
Khonnor
Fem kuti and the Positive Force
Mugison
New Cool Collective Big Band
Joanna Newsom
The Ravonettes
Snoop Dogg
The Tears
tBlog
My Profile
Send tMail
My tFriends
My Images
Sponsored
Blog
|
| rosalega loveable....hmm.. |
| 10.15.05 (6:04 am) [edit] |
|
Hmmm.... áhugavert
E |
Exciting |
L |
Lovable |
I |
Industrious |
N |
Normal |
|
| |
| Göngutúr dauðans |
| 10.15.05 (5:56 am) [edit] |
|
Já ég vaknaði í morgun, tók mér lesefni fyrir próf og las það uppi í rúmi með viðunandi árangri eftir dott með meiru. Að lokum hrökk ég upp við sms frá sambýlingnum mínum; "Drífðu þig nú á lappir sæta og let's take a walk on the wild side ;-) " Ég tók þetta alvalega og dreif mig á lappir. Klæddi mig í íþróttabuxur og lopapeysuna, skellti í mig skyri og gulrót og út með Heiðu í göngutúr. Við röltum upp að fjárhúsum og þar sem það eru ekki miklir göngustígar í þessu lita þorpi okkar hoppuðum við af gleði þegar við fundum þennan fína slóða milli túnanna. Við skelltum okkur af stað og kipptum okkur ekkert upp við það að hoppa yfir örfáa polla á leiðinni....... ....Þar til við komum bókstaflega að leiðarenda slóðans og komumst ekki lengra. Tvær grímur fóru að renna á okkur en ákváðum að labba samt sem áður ótrauðar áfram meðfram skurðinum sem tók við af slóðanum. Sem gekk vel... þar til við komum að enda túnsins og komumst að því að við vorum innlyksa á túninu, engöngu hættulegir skurðir sem þurfti að stökkva yfir. Eftir miklar spegúleringar, útrekninga og þrjósku að snúa ekki við stukkum við yfir skurðinn. Það var svo aðeins til að komast að því að annar skurður og rafmagnsgirðing beið okkar. Já ég gleymdi að tala um mýrina! Skurðurinn var að þessu sinni of djúpur og breiður (eins og holan í laginu) svo við treystum okkur ekki til að stökkva. Heiða hávaxna var svo hugrökk að klofa yfir rafmagns girðinguna og hætta á að steikja sitt allra heilagasta. Eftirá reiknði hún það út að þessi hluti girðingarinnar leiddi ekki rafmagn. Borgarbarnið klofstutta sem brenndi sig oftar en einu sinni (þá á höndum)þessa örfáu daga sem sveitasælan prýddi hana í barnæsku treysti þeim útreikningum ekki. Auk þess voru tvær kóngulær á girðingastaurnum sem ég var ekki tilbúin að leggja í. Sveitastúlkan henti þeim í burtu og þar með var það mál leyst. Ég treysti mér ekki yfir fyrr en bjargvætturinn minn greip um girðinguna að lokum án þess að stuðast verulega. Þegar yfir girðinguna var komið beið okkar en ein girðing,gaddavírs að vísu svo það var ekki mikið mál.
Ég veit ekki hvort ég hætti mér oftar í göngutúra með stúlkunni á herbergi 2 en gæti gefið henni sjens ef annar gönguslóði finnst hér á Hvanneyri.
Nú ætti ég að vera að læra svo ég kveð í bili....
|
|
|
| |
| Mig langar!!! |
| 10.11.05 (2:51 am) [edit] |
|
Já ég held að fólk sé búið að gefast upp á okkur..... Ég er s.s. í sveitinni að spókamig... sveitasælan hefur þau áhrif að ég gleymi tæknilegum hlutum eins og að blogga.
Af hverju er það alltaf þannig að manni langar alltaf í það sem er ekki hægt að fá? Ef maður er í megrun langar manni í súkkulaði. Ef maður er í fitun langar manni í gulrót. Talandi um gulrót þá var ég að horfa á Dalalíf.... hvurslags snilld er sú mynd? Mikið í mínum anda, enda borgarbarn með meiruað reyna að lifa af í menningu sveitafólks.
En já.. það semmanni langar í. Mig langar í popp, en örbylgjuofninn er ónýtur. Það var verið að poppa hér sl. fimmtudagsnótt á fullu þar til örbylgjuofninn brann yfir og sló allt rafmagn út. Síðan hefur ekki lifnað aftur á honum.
Mig langar í samloku með skinku og osti... ég á hvorki skinku né ost. Mig langar í pitsu... ég á hvorki pitsu né neitt annað Mig langar í Diet kók með meiru.... á það ekki heldur
Hvað á maður að taka til bragðs?
Ég þarf að læra en nenni því akkúrat ekki núna Sigga sambýlingur vil fá mig í video.... á maður að láta freistast???
Úff þetta er svo erfitt og flókið líf í annars hinni miklu sveitasælu.
þar til later Elín
|
|
|
| |
| Myndir og linkar |
| 07.11.05 (1:30 am) [edit] |
|
Jæja þá er ég búin að setja inn myndir frá hróaskelduhátíðarhöl dunum. Kannski ég skelli inn fleiri myndum síðar....
Ég er líka búin að koma inn linkum á flestar hljómsveitirnar sem við fórum á. Mæli sérstaklega með að þið kíkið á The Ravonettes, Death above 1979 og Mugison.
Have fun :lol:
p.s. mikið af þessum myndum eru frá Valdísi vinkonu. Vona að það sé í lagi skvís!
|
|
|
| |
| Hróaskeldugaman |
| 07.10.05 (12:59 pm) [edit] |
|
Úha! fjör á fjölbraut....
Já við Teddi erum búin að gera margt síðustu vikur. Foreldrar Tedda voru hjá okkur vikuna fyrir hróaskeldu. Inga dekraði okkur nokkrum sinnum með matarmennsku sinni....mmm! Mikið fjör og mikið gaman.
Þriðjudagur:
Telma Hlín vinkona kom til landsins og kíkti með mér aðeins í bæinn. Eftir það fóum við ásamt Tedda og foreldrum T í tívolí. Það var ágætt fyrir utan að við áttum ekki efni á að fara í tækin :shock: ekki gaman!
miðvikudagur:
Gunnsugunns og Valdísaskvísa komu til landsins og ég sótti þær gellur á hovedbaned um leið og ég skilaði Telmu til vina sinna því hún ætlaði snöggvast á hróa. Við Gunnsa og Valdís skruppum heim þar sem við Teddi kláruðum að gera okkur til. Inga og Guðmundur Tedda foreldrar kvöddu okkur svo og fóru heim á klakann. Eftir það skunduðum við fjórmeningarnir á hróaskeldu. Við Teddi höfðum klárað að tjalda svo það eina sem var eftir var að opna bjórinn og setjast hjá fólkinu sem við þekktum þarna. Þar sem þetta var eina kvöldið sem ekkert tónleikavesen var planað var ekkert annað í stöðunni en að detta smá í það. Það var nú bara hin ágætasta skemmtun enda gott veður og góður félagsskapur.
Fimmtudagur:
5:07: KALT KALT KALT!!!! Við Teddi vöknuðum í þvílíkum kulda. IKEA sængin sem við höfðum keypt á 30 DKK var víst ekki nóg svo við neyddumst til að skreppa heim í Australiensvej og leggja okkur. Eftir góðan beauty blund og sturtu löggðum við aftur af stað til Roskilde til að ná byrjunartónleikunum. Og það sem við sáum:
- Velvet Revolver: Ekki minn bolli af the-i. Teddi fílaði þetta samt, enda meiri þungarokkari en ég. Þó fannst honum “Mother Focker” fílíngurinn í söngvaranum full mikill á köflum!
- Sonic Youth: Meiriháttar, vildi að ég hefði troðið mér framar og fílað mig í botn, mjög gaman. Teddi var líka að fíla þetta þó þetta sé ekki alveg það sem hann leggur í vana sinn að hlusta á. En gott var það samt.
- Kent: Voru góðir í rauðu leðurbuxunum sínum. Komu á óvart í “live” hæfileikum sínum.
- Mastodon: Tedda fannst þetta allt í lagi, ekkert frábært samt. Ég var EKKI að fíla þetta. Þoli ekki þetta glataða þungarokk. Blöah!
Kvöldið var búið snemma í þetta skiptið svo það var ekki mikið annað í stöðunni en að setjast og drekka í smá stund. Í góðra vina hópi að sjálfsögðu. Fínt kvöld...fínt...
Föstudagur: Föstudaginn byrjuðum við snemma, enda búin að sofa vel eftir að hafa verið með hlýja stóra sæng!! Víí
- Mugison: frábær, brillíant, meistaraverkari!!! Mjöög skemmtilegur. Mæli með kallinum
- Enslaved: hollenskt þungarokk (viking metal?!?), Elín segir jakk, Teddi segir já takk
- Ali Farka Turé: ágætir gaurar, blúsari frá Malí.
- M83: Einn gaur (mugison fílari) með hljómsveit í þetta skiptið. Urðum fyrir svolitlum vonbrigðum með hann. Ekkert frumlegt í gangi.
- Snoop Dogg: Þetta er snoop dogg....hvað á maður að segja?
- Audioslave: Teddi var fremstur í flokki þar. Mikill aðdáandi söngvarans. Diggaði þetta, kallinn sá arna. Elín var hins vegar ekki alveg að digga þetta og fór því á the perceptionists.
- The perceptionists: Einhverjir rapparar, Elín eitthvað aðeins að misskilja og ekki að fíla.....
- The Tears: Suade söngvarinn, Brett Anderson með félaga sínum. Svolítill Suade fílingur en samt alls ekki Suade. Mjög fínt brit popp. E&T sammála um ágæti þess.
- Black Sabbath: Einn af hápunktum hátíðarinnar. Ozzy skælbrosandi allan tímann, í miklu stuði og mikið gaman. Flestir sammála um frábæra skemmtun! Allir slagararnir teknir og Ozzy og félagar langt því frá að vera ryðgaðir.
- Death from above 1979: Teddi skrapp á þá og var algerlega að finna sig þar. Rokktónlist (frá kanada) af besta tagi.
- Femi kuti & the positive force: Teddi fór líka á þá. Allt í lagi svona, ekkert sem skilur eftir sig samt.
- Junior Senior: Elín rakst á þá á leiðinni heim. Stoppaði við, alveg þess virði. Dönsk hipp hopp dans rokk hljómsveit, minnir á hina íslensku Dáðadrengi. Mikið hopp og skopp og skemmtilegheit. “Everybody, get the feeling to your body wooowo” ef einhver kannast við það (Move your feet)
Svo fórum við heim að sofa, enda þreytt eftir langan dag.
Laugardagur: Dagurinn tekin aftur snemma. Elín var æst í að sjá hinn fjallmyndarlega Angu live
- Angu: Grænlenskt augnayndi sem spilar hugljúfar ballöður. Elín nokkuð hrifin af honum. Mikil vonbrigði þó. Var í engu stuði og var bara hálf glataður gúmmítöffari. Elín er hætt að vera skotin í honum núna :’(
- Enzo Avitabile & Bottari: Ítölsk fjör hljómsveit. Spila meðal annars á rauðvínstunnur. Við töldum 14 á sviðinu. Stuð.
- Bjørn Berge: Norskur gaur sem Teddi kíkti á. Bubba fílingur, ku vera mjög hæfileikaríkur á gítarinn sinn. Teddi í botnfíling þarna.
- Khonnor: Elín skrapp á þá. Raf-tölvupopp. Tveir gaurar með tölvurnar sínar, gítar og flautur. Með bjarnarhausa. Fjör, klassískt tölvupopp. Vert að tjekka á samt.
- Fantomas: Góð hlómsveit í flesta staði, en þarna voru þeir heldur þungir, meira að segja Tedda fannst þeir of þungir þarna. Svo við færðum okkur um set.
- Devendra Banhart: Huggulegar vísur. Góður gaur. E&T sammála um það.
- Jimmy Eat World: Voða glatað háskólarokk. Ekkert stuð, engin stemming.
- Foo Fighters: Hvað á maður að segja? Teddi var meðal fremstu. Mjööög gaman og góð stemming. Dave Grohl í miklu stuði eins og vanalega og röddin ótrúleg.
- New Cool Collective BigBand: Hollenskt Big band. Fín stemming og fjör gaurar.
- The Hidden Cameras: Kanadísk fjör hljómsveit. E&T að fíla þetta vel.
- Patton/Rahzel: Mike Patton DJ með ýmsar raddir (hefur m.a. unnið með Björk) og Rahzel, human beat box gaur. Mjööög flottir, ætluðum ekki að týma að fara frá þeim til að kíkja á næstu hljómsveit.Rosalega skemmtilegir og færir með raddirnar sínar.
- The Ravonettes: Danskur dúett, að vísu með hljómsveit með sér. Fjörugt rokk, Elín amk að fíla þetta mjög vel. Elínar bolli af The-i, tvímælalaust!
- Duran Duran: Meeeega fjör, enda hvítvínið farið að verma kroppa okkar. Rosa fjör og mikið dansað!
Komin upp í tjald um klukkan 3:00 og orðin ansi þreytt og steinsofnuðum eftir stutta drukkusetu.
Sunnudagur leit dagsinns ljós og enginn tími fyrir messu því dagskráin full eins og fyrri daginn.
· & nbsp; Joanna Newsom: Amerísk stúlka með hörpuna sína og rödd að vopni. Þessi er með mjög barnalega rödd sem fór á köflum í taugarnar á okkur, en engu að síður er hún með fallega rödd og mjög klár á hörpuna sína.
· & nbsp; The Futureheads: Fínir gaurar....popp rokk. Kúl....jám....kúl
· & nbsp; Turbonegro: Glötuð tónlist, en fyndið show. Sænskir gaurar í Wig wam fíling.
· & nbsp; The Go! Team: Fín tilraunarkennd Ensk hljómsveit með ofvirkri söngkonu sem fór svolítið í taugarnar á okkur. Annars var stuð á þeim og skemmtilegar tilraunir í gangi.
· & nbsp; Block Party: Mjög fín tónlist. Þarna löggðum við Teddi okkur að vísu í grasinu undir tónlistinni og vorum vakin með ókeypis faðmlögum frá gömlum skólabræðrum Elínar. Símon og Gaui skunduðu um svæðið í öllu sínu veldi, berir að ofan með sígarettuna í annari og bjórinn í hinni með merki framan á sér sem á stóð “hugs 4 free”....mjög endurnærandi
· & nbsp; Interpol: Jæja lokatónleikana átti að taka með trompi þar sem Elín var eitt sinn Interpol aðdáandi. Við biðum fremst í 1,5 tíma til að ná besta staðnum. Þeir stóðust engan vegin undir væntingum okkar. Söngvarinn virtist vera bara allt annars staðar, enganveginn að reyna að halda stemmingu. Bassaleikarinn og gítarleikarinn voru stuðboltar þó og náðu að bjarga stemmingunni. Síðustu lögin stóðu uppúr enda af fyrri disknum þeirra sem er að Elínar mati mun betri.
Eftir þetta vorum við svo úrvinda af þreytu að við drifum okkur upp í tjald og pökkuðum dótinu okkar. Allir virtust vera að fara heim og tjadsvæðið minnti helst á stríðssvæði (Warzone!!) því fólk skildi eftir helminginn af dótinu sínu, brenndi tjöldin og réðst á restina með kylfum. Fjööör þar á bænum.
En mikið var gott að komast heim!!
Framhald síðar :)
|
|
|
| |
| ALLT AÐ FYLLAST! |
| 06.21.05 (3:13 am) [edit] |
|
Vá þvílíkur gestagangur í gangi þessa dagana!
- Mamma kom í maí og við höfðum það hrikalega gott
- Foreldrar Tedda komu 9-11 júní og skruppu svo til Búlgaríu
- Við slöppuðum af í sólinni og Inga eldaði handa okkur mat
- Arnar Ingi litli bróðir kom með mömmu sinni, stjúppabba og frænku
- Ég fékk að knúsa hann í kaf! Rosalega gaman að sjá hann!
- Á föstudaginn kom hann í heimsókn til okkar Tedda og gláptum á video og borðuðum hamborgara.
- Svo á laugardaginn var þjóðhátíðarhöld á vegum Íslendingafélagsinns. Við skruppum á amagerströnd að fagna aðeins. Svo um kvöldið buðu Ragnheiður og Jón okkur í tívolí og í mat. Rosalega skemmtilegt við fórum örugglega 5x í rússíbanan auk þess í mörg önnur tæki og skemmtum okkur konunglega!!!!
- Næst á dagskrá eru það foreldrar Tedda aftur, 25-29 ágúst
- Svo 27 kemur Telma Hlín vinkona og hún ætlar á Hróaskeldu síðan
- Hróaskelda 29/6 til 4/7 og Telma, Valdís og Gunnhildur verða allar þar....vííííí!!!!!!!!!
- 15-22. júlí koma svo María, Emil litli rúsínurassgat og Barbara vinkona Maríu í heimsókn
- Kristín Brynja frænka er búin að plana amk að koma 4 eða 5. ágúst og vera til 10....bíð bara eftir að hún panti flugið :oD
- 10. Ágúst förum við svo heim í sumarfrí!!!!
- 5. sept komum við svo aftur út
- 7. sept hafa bræður Tedda, Gunnar og Stefán pantað flug til okkar!
Vá hvað verður gaman hjá okkur næstu mánuði!!!
Þó það sé mikið að gera væri alltaf gaman að fá fleiri gesti! Beini þessu sérstaklega til flökkukindarinnar systur minnar, Kalla, Emilíu og co., Pabba, Brynju frænku, Hafdísar og Birtu frænkna, Agnars Freys frænda o g Guðrúnar, Péturs og co.
Koma svo fólk!
þar til síðar, Eið af Téinu
|
|
|
| |
| Helgin og fleira |
| 05.24.05 (1:16 pm) [edit] |
|
Já rosa hlutir búnir að gerast, Eurovision og svonna.
En mamma gamla kom í heimsókn um daginn, verð að hafa nokkur orð um það....ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÐðð ððððððIIIIIIIIIIIi iiiiiiiii
Oh hvað er æði að fá múttu sína og leyfa henni að dekra við sig. Við hygge-ðum okkur alveg á fullu hérna í sweet köben. Einn daginn skruppum við til Malmö og hlustuðum á lúðrasveitir og drukkum öllara. Annan daginn fórum við á Nýhöfn, versluðum (mamma verslaði dúndur dress fyrir barcelonaferðina) og fórum líka á Ástralskan veitingastað, þar sem ég smakkaði Krókodíl ...mmmm...., teddi smakkaði kengúru ...mmmmm segir teddi,og mamma smakkaði....man hreinlega ekki hvað... Svo fengum við mæðgurnar okkur meeeeeeeega góðan eftirrétt. Súkkulaði æði, bara mix af alls konar snilldar súkkulaði eftirréttum, besta súkkulaðisull sem ég hef smakkað!
Sem sagt, frábært að fá múttu sína í kotið!
Síðasta helgi var líka mjög góð. Föstudagurinn var tekinn með rólegheitum fyrir framan sjónvarpið. Svo var nottla Eurovision á laugardeginum. Danir kalla þetta nú bara Grand pris, voða glatað, fæstir höfðu heyrt danska lagið fyrir laugardaginn og engvir af dönsku vinum okkar voru að horfa, vissu varla af þessu. En við horfðum nottla á þetta eins og sannir íslendingar. Addi fótboltafélagi Tedda leigði sal í Kollegi byggingunni sinni og hélt þetta massa partý. Fólk var nú frekar rólegt á því fram eftir kvöldi en við Teddi ákvaðum að skreppa niður í bæ og tjekka á stemmingunni. Þegar við komum út úr blokkinni vissum við hreinlega ekkert hvert við áttum að stefna, alveg ókunnugt hverfi svo við æddum bara eitthvað áfram. Ég var að tjekka á púlsinum hjá Möggu, Hildi og co. í símanum, kjaftaði á fullu og æddi bara áfram. Æddi alveg þar til ég labbaði fram hjá tveimur stúlkum sem stóðu við strædóskilti. En ég tók ekkert eftir þeim fyrr en önnur þeirra náði athygli tedda og ég heyrði bara útundan mér "Íslenska...Er þetta Elín??" Teddi svaraði svo "já.....ööööhhh....Elín??" Svo ég sneri mér nottla við og sá þar Evu Dís og Diddu Víðistaðarskólagellur (og Eva nottla gömul Öldógella líka)! Ég náttúrulega skellti á Hildi greyið um leið og stökk á Evu. Ég vissi að hún byggi í köben en hafði ekki hugmynd hvar hún ætti heima eða neitt. Þvílík tilviljun að hitta þær akkúrat á þessum tíma og þessari stundu hehe.
Gaman að þessu.
Núna er svo bara vinna og læti fram að næstu helgi. M&M: Margrét og Marvin hafa pantað gistingu á föstudaginn svo það verður hyggeð, spilað og haft það gott í góðra vina hópi. Á laugardaginn kemur Gísli Jósep vinur Tedda í heimsókn svo við hyggum okkur með honum og gerum eitthvað fjör.
Æ hvað er alltaf gott að fá helgina!
|
|
|
| |
| Fokk Júróvisjón |
| 05.19.05 (1:17 pm) [edit] |
|
Urrrrr.........susssssss..........rruuuuuussssssuuuuuukusss sss!
Fokking danir.....og Lettland??????
ég er fúúúl
ég ætla að láta Norsara ættleiða mig!
|
|
|
| |
| Brandarakelling |
| 05.16.05 (8:47 am) [edit] |
|
Ok Helgin var ekkert fréttnæm sökum veikinda á heimlinu. Ég hef ekki farið út úr húsi í oooooof langan tíma og er það farið að hafa veruleg áhrif á heilsufar mitt. Ég rugla bara og bulla og er satt að segja með bakverki af kyrrsetu (og örugglega sár á botninum).
En við fórum frekar seint að sofa í gærkveldi, fjarstýringin að brenna við því við vorum bara að flakka á milli stöðva. Svo ég var komin með rosalegan svefngalsa og sagði brandara á fullu. Ég er víst ekkert fyndin, en mér finnst ég vera rosalega fyndin og samdi nokkra brandara sem ég ætla mér að deila með ykkur:
What did the palmtree say to the coconut? -Got milk?
Hvað sagði kókoshnetan við pálmatréð? -Sjaldan fell ég frá þér!
Hvað sagði hafið við sjóinn?? (þetta er sko bara allur brandarinn wahahaha)
Ég ætti að skrifa bók. Kunnið þið að semja betri?
Valdís vann s.s. með "allir krakkarnir" brandarana sína og fær hún kokteil hjá mér þegar hún kemur!
Núna er önnur keppni í aulabröndurum.....oooooog allir með!
|
|
|
| |
| 128 í greindarvísitölu!! |
| 04.27.05 (12:37 pm) [edit] |
|
Haha fyndið!
Ég tók svona próf á netinu, eitthvað um kynlífs greindarvísitölu og vitið menn ég er "exeptionally" í hárri greindarvísitölu!! Hahaha ég náði hærra skori en yfir 95% þáttakanda! Vá hvað ég er klár í þessum kynlífsmálum!
Úff Teddi er að fríka út hérna yfir Chelsea og Liverpool leik, 87:55 og staðan 0-0 hann er að bráðna úr spenningi. Ég kippist alltaf til þegar hann æsir sig. Hann er ekki vanur að æsa sig svona þessi Elska. Ég horfi á leikinn með öðru auganu, svona þegar Mourinho kemur á skjáinn.....:oD
Talandi um að vera spenntur, ég er svo spennt að fá mömmu á föstudaginn að ég er ekki að meika sens þessa dagana! Ekki í sambandi....úff...
Jæja þarf að fara að leggja mig, vinna kl 7:30
|
|
|
| |
| Ekkert að frétta |
| 04.23.05 (6:06 am) [edit] |
|
Úff hvað þið eruð léleg hérna hjá mér....kann engin nema Valdís og Harpa alla krakka brandara? Eða eru þær bara þær einu sem koma á bloggið mitt?? hahaha þá er það sorglegt! Jæja það er ekki mikið að gerast hérna hjá okkur. Mamma (Ellu) er að koma í heimsókn til mín þann 29 og ég er komin með þvílíkt í magan af spenningi. Úff.
Já það er bara eeekkert að frétta hjá mér...újee nú vantar mig Catiu á msn til að horfa með mér á Vh1 á mega gæða þáttinn "from flab to fab" haha
Jámm í gær komu Kaspar, Sarah og systir Kaspars. Við horfðum saman á debute mynd Arnold "strong"; Herkules in New York. Haha alger snilld, svo var bara drukkið og hlegið. Í kvöld er svo planið að fara út að dansa eins og Kaspar orðaði það. Það verður vonandi fjööör. Jæja segi ykkur meira seinna, hef nákæmlega ekkert að frétta!
|
|
|
| |
| Allir krakkarnir... |
| 04.16.05 (6:44 am) [edit] |
|
Ég var að flakka um á bloggsíðu og fann þessa frábæru "allir krakkarnir" brandara...mér finnst þeir rosa fyndnir haha. En að þessu tilefni vil ég endilega fá ykkur til að koma með ykkar brandara....þeir sem vinna keppnina fá kokteil og gistingu hjá mér hér í dk :o) vííí
Allir krakkar brandarar
Allir krakkarnir fóru að gráta við jarðarför kennarans -Nema Mæja hún fór að hlæja
Allir krakkarnir horfðu á örbylgjuofninn -Nema Binni hann var inni
Allir strákarnir dönsuðu við stelpur á ballinu -Nema Ágúst hann dansaði við strákúst
Allir krakkarnir fóru á djammið -Nema Hildur hún hafði skyldur
Allar stelpurnar notuðu víbrador -Nema Eir hún notaði leir
Allir krakkarnir kunnu að ríma -Nema Doddi hann kunni það ekki
Allir krakkarnir horfðu á kirkjuna brenna -nema hermann Það var verið að ferm'ann
Allir krakkarnir voru í boltaleik -nema Gvendur Hann var ekki með neinar hendur
Allir krakkarnir fóru í körfubotla -Nema Bergur Hann er nebbla dvergur
Allir krakkarnir höfðu hár -Nema Halla Hún var með skalla
Svo nokkrir hjá mér með nöfnum fjölskyldumeðlima og vina:
Allir krakkarnir keyrðu BMW -Nema Magga hún var á kagga
Allir krakkarnir fóru á U2 tónleika -Nema Kalli hann var á balli
Allir krakkarnir voru óþæg -Nema Ingi Snær hann er svo svaka kær
hahahahaha ég sökka hrikalega í þessu
Allar stelpurnar voru lúðar -Nema Ella -hún er alger gella
yeee þessi er góður
Allir krakkarnir voru enn að borða -Nema Hjödda -hún var sú södda
Allir krakkarnir voru í skóla -Nema Ingi -hann var á þingi
Allir krakkarnir fíluðu pop(p) -Nema Eminem - hann fékk sér m&m (með hnetum)
múhaha úff...segið mér að hætta ég er svo léleg ok, einn í viðbót:
Allar stelpurnar voru í fegurðarsamkeppnum -Nema Cathy -hún var of naughty
hmm....einn hrika feministalegur Jæja reynið svo að toppa mig múhaha!
|
|
|
| |
| Massa partý |
| 04.13.05 (1:49 pm) [edit] |
|
Jæja þá eru komnar flottar myndir frá Innflutningspartý sem við fórum í um helgina. Díteilar koma seinna. Myndirnar segja meira en mörg orð!
party on!
|
|
|
| |
| kvitta |
| 04.09.05 (4:34 am) [edit] |
|
Hey gleymdi að segja, þar semég er ekki með gestabók eru þið til í að kvitta með að skrifa komment, mér finnst svo gaman að sjá hverjr eru að heimsækja mig :D
|
|
|
| |
| bloggiddí blogg |
| 04.09.05 (4:25 am) [edit] |
|
Jæja þá ætla ég að blogga meðan ég horfi á bryllup Karls bretaprinss og Camillu Parker-Bowles.....ætli hún muni núna heita Camilla Parker-Bowles-Windsor?? Þær eru allar með svo fína hatta. Ég ætlað fá mér svona fínan hatt til að snobbast með. Æj hún virðist ágæt greyið.
Jæja nóg með það. Ég er búin að vinna þessa vikuna á meeeeeest boooooring stað í heimi. Ég þarf í raun og veru ekkert að vera þarna, þau þurfa EKKERT á mér að halda. Ég klára uppvaskið (sem ég er því miður bara í) á hálftíma og er svo bara að bora í nefið til að hafa eitthvað fyrir stafni....úff! Teddi bannaði mér samt að segja þeim að þau þyrftu mig ekki því þá væri ég ekki með vinnu hehe. Svo ég kvíði svolítið fyrir næstu viku, þetta er svoooo leiðinleeeegt að gera eki neeeeeitt!
Í gærkveldi fórum við á enn eitt Selfoss djammið....ekkert nema Selfyssngar hérna hehe. Já Gestur og Hebbi voru í heimsókn hjá Nirði og við kíktum aðeins út á lífið með þeim, auk þess kom svo Einar Karl og Margrét og svo síðast slatti af selfyss og hafnfirðingum vívíí... Þannig að það var massa stuð.
Fyndið ég sá eina Japanska konu þarna í bryllupinu og fór þá að hugsa það eru baaara hvítar manneskjur þarna allar yfir 25 ára....þekkir Charles bara svoleiðis fólk?
Jæja ég verð að fara að drífa mig í sturtu og svo eitthvað út í sólina og kaupa augnblýant og spennur fyrir hárið mitt og svonna eitthvað að stússast. Kem með myndir af djamminu á morgun eða hinn svona eftir því hvernig ástandið verður á mér á morgun. Er að fara í danskt innflutningspartý í kvöld, þau eru yfirleitt frekar hevví hehe.
till nekst tæm !
|
|
|
| |
| Póllandsmyndir! |
| 04.07.05 (7:21 am) [edit] |
|
Jæja hér til vinstri er komin linkur að myndum af Póllandsferðinni okkar...vííí:lol:
Þar til næst :oD
|
|
|
| |
| Úff! |
| 04.06.05 (2:09 pm) [edit] |
|
Úff ekkert smá mál að koma þessum myndum í gang...þetta er allt að koma folks, kemur á morgun...tek þetta í köflum! Fjöööööör
p.s. mér er illt í rassinum á sófasitji með tölvuna ....aaaawwwww
|
|
|
| |
| Jæja....ikið var! |
| 04.01.05 (8:44 am) [edit] |
|
Jæja þá drullast ég til að setjast niður með hönd í bjór og blogga.... Ég hef ekki gert neitt síðan ég fann mína ástkæru súrmjólk fyrir Jól!!! Sem bæþevei er ekkert spes at oll....
En já mikið hefur drifið um daga okkar hjónaleysa síðan síðast....dyggir aðdáendur eru ekki ennþá búnir að gefast upp á mér og eru að reka mig áfram í að bloggast eitthvað að viti.
Já við erum flutt af Norðurbrú til Austurbrú. Ekki eins mikið stuð en massa fín íbúð með crazy stórum crazy ketti sem vekur mann kl 5 á morgnanna og heimtar mat...svo opnar hann hurðina hjá manni!!! Massi......En okkur líður voða vel
Jámm svo erum við búin að vera í massa Dönskunámi líka, búin með 2 level af heilum 11!!!!!!!!!! 11!!!!!!!!!!1 11!!!!!!!!!!! við höfum tekið okkur smá hlé sökum tímaskorts en plönum að fara aftur. Mitt missjón er að klára allt og fá skólastjórann (Steen) í að hjálpa mér að hvetja íslensk stjórnvöld í að bæta dönskukennslu í skólum heima....ekki nógu gott eins og stendur. Vá hvað maður hefur gott af alvöru dönskunámi, maður er aðallega að læra Köben hreim og svonna.
Jæja svo skruppum við til póllands um páskana. Í lítinn bæ við landamæri Þýskalans sem heitir Szczecin. Löbbuðum meira að segja til þýskalands og allt. Þar gistum við á 5* hóteli og reyndum bara að slappa af á fullu. Fórum í smá sætsing túr sem ég set nokkrar myndir af á síðuna að sýna ykkur!
En nú verð ég að fara að seta meikið framan í mig því við erum á leiðinni út á lífið og hygga mig með nokkrum orginale Selfyssingum.
Ég skrifa meira innan viku....og það er loforð!!! Úff...ég vil þakka akademíunni og öllum vinunum sem hafa staðið með mér í þessu bloggi og stutt mig áfram að skrifa meira :?
síja...vúldunt vonna bíja!
ykkar eina og sanna Elín
|
|
|
| |
| Ég fann súrmjólk!! |
| 11.30.04 (10:21 am) [edit] |
|
Frábært! Elín er búin að vera að leita að danskri súrmjólk...er hún bara eins og skyr, eitt af því sem maður fær ekki nema heima á íslandi...NEI!!! Elín fór út í búð og keypti Kjernemælk í grænum umbúðum sem virtist vera svolítið þykkt. MMMMMmmmmmmmmm!!! Ég fékk súrmjólk!!
Gammeldansk kjernemælk = Súrmjólk
Veiii... bara langaði að deila þessu með ykkur...veii..
þar til næst
|
|
|
| |
| Með tengdó í rússíbana! |
| 11.24.04 (1:06 pm) [edit] |
|
Jæja, við erum búin að fá fyrstu formlegu heimsóknina til okkar! Foreldrar Tedda skelltu sér á 5 kr. tilboð hjá IcExp. og skelltu sér út. Þau komu s.s. í síðustu viku og voru í heilar 4 nætur hjá okkur. Elín var í fríi þá daga sem þau voru hér og Teddi tók sér frí síðustu tvo dagana. Fyrst var farið að sjálfsögðu á hið fræga Ráðhústorg þar sem fyrsta myndin var tekin á nýju myndavélina* okkar Tedda. Síðan gengum við upp strikið, þar sem mömmu Tedda tókst að kaupa skópar og kápu á um hálftíma...með stuðning Elínar og Guðmundar, pabba Tedda :) Ég held að Guðmundur hafi verið í hálfgerðu sjokki eftir þetta því hann doflaði okkur bara inn á Vinstuen á Kongens Nytorv og bauð okkur bara upp á kakó...það var mun ódýrara að hafa okkur "tengdamæðgur" í kakósötri en röltandi Strikið, við vorum ansi fljótar að eyða peningum ha ha ha! Um kveldið var svo slakað rækilega á eftir góðan mat.
Dagur tvö var tekinn heldur rólega. Við skruppum niður á Nyhavn að skoða okkur örlítið um. Um kveldið elduðu Teddi og Ella kjúkling A-la Jamie Oliver...hrikalega góður. Eftir uppvask og frágang var farið í Yatzy þar sem Guðmundur fór með sigur að hólmi.
Þriðja og síðasta daginn sem eitthvað var hægt að flakka tók Teddi sér frí. Við byrjuðum á að teyma þau gömlu niður í Christianiu að skoða skrautlegt líf og skemmtileg hús. Það var heldur kalt og hvasst svo við stoppuðum ekki lengi við, heldur skelltum okkur aftur á Vinstuen og fengum okkur nokkra bjóra áður en við skruppum í Tívolí. Þar var Jólastemmingin að ná áttum, mikið af jóla jóla básum, skrauti, sveinum, glöggi og fjöri. Kvöldið náði svo hámarki þegar Inga mamma Tedda fékk okkur til að koma í rússíbanann með sér. Svo virðist vera að hún er mikill rússíbanaaðdáandi. Það var hrikalegt fjör og mikið öskrað og hlegið.
Í heildina var rosalega gaman að fá þau í litlu íbúðina okkar og vonum við að það hafi farið vel um þau hjá okkur.
Sérstakar þakkir viljum við færa mömmum okkar sem "plottuðu" það að koma með breiðlokur til okkar....alla leið frá hinum frábæra veitingarstað sem pylsuvagninn á Selfossi er :)
*Já við Teddi og Ella keyptum okkur digital myndavél í jólagjöf til og frá hvort öðru. Myndir væntanlegar á vefnum á næstu dögum.
þar til næst
|
|
|
| |
| Komin með íbúð |
| 11.24.04 (12:24 pm) [edit] |
|
Jæja þá er það komið í ljós. Við erum komin með aðra íbúð í janúar. Eins og flestir vita þá þurfum við að fara úr þessari íbúð í Janúar/Febrúar því eigandinn er að koma aftur frá afríkunni.
Já í búðin er í østerbro á Ástralíuvegi. Þetta er svipað sístem og hér, s.s. 2 rúmgóð samliggjandi herbergi og aðgangur að stóru eldhúsi og klósetti. Við komum til með að búa með einum manni s.s. eigandanum sem er bara mjög fínt!
Góðu fréttirnar eru þær að þetta er á fínum stað, íbúðin er ódýrari og aðeins á fyrstu hæð (svo mömmur, pabbar og eldri frænkur geti komið í heimsókn ;o) ). Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að það er engin sturta í íbúðinni!!! Hehe við verðum bara skítalabbar...eða við neyðumst til að kaupa kort í líkamsrækt og ræktum líkama okkar á fullu og förum svo í sturtu alltaf þar. Reyndar er sameiginleg sturta í kjallaranum fyrir alla í búa blokkarinnar...ekkert voðalega girnó, og þeir sem þekkja Elínu vel vita að það er ekki beint hennar bolli af te-i að deila sturtu með mörgum...húðfita frá fleiri en 2-3 öðrum manneskjum er ekki girnilegt!!
En það er víst systemið hér í Danaveldi/Köben að maður þarf að koma sér í annan gír og vera bara tjillaður á þessu öllu saman!
|
|
|
| |
| Julefrukost 11. des! |
| 11.02.04 (12:10 pm) [edit] |
|
Já, við skötuhjú vorum að enda við að setja niður dagsetningu á Julefrukost (jólahlaðborð). Við ásamt Kaspar & Söru herbergisfélagana okkar höfum ákveðið að halda Julefrukost þann 11. des. Girnilegt hlaðborð fullt af góðum dönskum og íslenskum jólamat. Mmmmm...ég fæ strax vatn í munninn af tilhugsuninni. Síld, svínaskinka, epplakryddsulta, jafnvel hangikjöt, brúnaðar karteflur, jólabjór og Gammel dansk!
Ykkur, vinum og vandamönnum, er hér með boðið. Frí gisting (en takmörkuð), fyrstir koma/hringja/senda e-mail, fyrstir fá!
þar til síðar!
|
|
|
| |
| Komum heim um Jólin |
| 11.02.04 (12:04 pm) [edit] |
|
Já, við sambýlingarnir komum heim um jólin, þann 14. desember eigum við bókað flug heim til íslands. Svo við verðum alveg yfir jólin og áramótin og komum aftur hingað út þann 4. janúar 2005.
Svo það er eins gott að þið ágætu vinir og vandamenn dekrið við okkur núna...við vitum ekkert hvenær við komum svo næst!
Nei...létt spaug...þið þurfið ekkert að dekra við okkur, bara kaupa dýrar jólagjafir er nóg.
Fyrsta formlega heimsóknin til okkar
Já fyrstu formlegu gestirnir okkar eru að koma eftir tæplega tvær vikur. Það eru hjónakornin úr Réttarholtinu, foreldrar Tedda. Þau koma 14 nóv. Það verður alveg hreint hrikalega gaman að fá þau, sýna þeim litla heimilið okkar og "hygge" með þeim :o) Við hlökkum mikið til að fá þau.
Að vísu höfum við einu sinni áður fengið gesti. Það var reyndar með nokkura klst. fyrirvara að við höfðum enga auka dýnu til að sofa á. Já, þau Harpa og Hörður skelltu sér til Danmerkur um daginn. Meiri hlutann af ferð sinni voru þau í Kolding hjá vinum og félögum en komu svo í lok ferðarinnar og voru hér í Köben. Eitt kveldið urðu þau viðskila við vini sína, svo þau skelltu sér bara til okkar (eftir að við hittum þau svolítið í miðbænum á djamminu) og kúrðu uppí stóra rúminu. Svo við gistum þar fjögur, í stóra rúminu okkar. S.s. nóg pláss ef einhver vil koma í heimsókn...þ.e. ef þið eruð ekki of stór í sniðum ;o) Nei án alls gríns, þá er auka loft-dýna komin, svo það er nóg pláss!
|
|
|
| |
| ok, ok, ok |
| 11.02.04 (11:27 am) [edit] |
|
Hér með biðjumst við innilegrar velvirðingar á langri bloggtíð.... Við fengum vinnu og skyndilega líða dagarnir hjá eins og ég veit ekki hvað.
Já Elín er komin á fullt í uppvask, smurbrauðsgerð, salatgerð svo ég tal ekki um matargerð öðru hvoru. Þetta er bara rosa fjör satt að segja... Ég er búin að fara um allan bæ og stór-Kaupmannahöfn að vinna. Vakna stundum jafnvel kl 5:30, er komin út á strædóstöð kl. 6:00 og mætt í vinnuna kl. 7:00. Þetta er ekkert smá ferðalag. En já, ég er búin að vinna á u.þ.b. 5 stöðum og flestir hafa verið mjög næs, nema ein kella.... Annars er bara ágætt að vakna til að fara í vinnuna. Við Teddi plummum okkur s.s bara mjög vel hérna.
Ellu gengur hrikalega vel að læra dönskuna. Eftir að hún byrjaði að vinna er allt að koma. Hún spjallar við hina og þessa á dönsku, og meira að segja við gamla konu sem býr fyrir neðan okkur! Það kemur hratt þegar fólkið er duglegt að tala við mann eingöngu á dönsku.
|
|
|
| |
| Hvað er títt? |
| 10.07.04 (5:57 am) [edit] |
|
Jæja nú er þriðji vinnudagur Tedda. Honum líst bara ágætega á þetta allt saman. Þetta er ekki mest spennandi starf í heimi en þetta er vinna. Hann vinnur með fólki alls staðar að úr heiminum. Aðallega Spánvejum, Portúgölum og Brasilíumönnum. Hann er farinn að koma heim til Elínar á kvöldin og blaðra bara spænsku/portúgölsku út í eitt og hún skilur hvorki upp og niður! Kannski endum við bara á spáni í skóla? Við erum ekkert að læra í dönsku :o)
Elín farin að vaska upp
Það er ekki nóg með að við þurfum að vaska upp hérna heima eftir okkur og herbergisfélagann heldur er Elín komin með vinnu við uppvask. Já, þið lásuð rétt. Elín er líka komin með vinnu....þetta er bara æsifréttir, hver á fætur annari!!
Já í gær var hringt í dömuna og einhver kall sagði bara bla bla bla með dönskum hreim. Elín sagði bara "jaaaa....jaaa..ahaaa..." svo fattaði hún þegar hann sagði nafnið á fyrirtækinu í tíunda skiptið! "Jaaaaaaaa!!" sagði Elin þá. Svo sagði kallinn (enn á dönsku) að hann vildi fá mig (Ellu) í viðtal og eitthvað. Ég sagði þá bara "Jaaa, gerne!" Svo endaði með því að hann talaði bara Ensku og´bókaði mig í dag... réttara sagt í morgun. Hann bara blaðraði við mig í um klukkutíma og endaði með því að við skrifuðum undir og ég tók við fullum poka af vinnufötum og dreif mig heim.
Þetta er s.s. vikar vinna svipað og Teddi er í, afleysingar. Þannig fáum við að ráða svolítið hvernig við vinnum og hvað mikið. Það er t.d. meiri líkur á að við getum komið heim um jólin í svona vinnu. Við getum alltaf sagt "nei" eða annað slíkt. Vinnan hjá mér er í mötuneyti hér og þar út um allan bæ. Ég fæ líklegast að byrja við uppvask og léttari eldhússtörfum s.s. salat bar o.fl.
Jæja þá er bara að bíða eftir símtali um fyrsta verkefnið. Ég byrja líklegast í næstu viku á þessu öllu saman
Bókasafnsferð
Í gær skruppum við skötuhjúin í Íslendingabókasafnið í Jónshúsi. Þar er ágætt bókasafn af bókum á íslensku. Við fórum svona bara til að kynna okkur húsið og starfsemina. Á bókasafninu var frábær kona að vinna og Elín fór að spyrja hana um kvennakórinn. Þá kom í ljós að hún er í kórnum og hún kvatti Ellu til að koma á föstudaginn og kíkja á þær þar sem þær eru að fara að syngja. Á leiðinni út kíktum við á kirkjukórinn líka. Þau eru víst mjög fá... Elín ætlar að kynna sér starfsemina því hana langar svolítið í kór... troða sér í einhvern félagsskap með Íslendingum. Við kíkjum á föstudaginn á kvennakórinn og sjáum til hvernig þetta er.
þar til síðar, E&T
|
|
|
| |
|
|